Skil þetta ekki alveg

Hvernig getur verið komin aska á Grænland þegar það hefur ekki komið nein aska hérna á suðvestur hornið ?? er Askan búin að fara þá hringinn í kring um hnöttinn ?? Sá spyr sem veit ekki ??  Veit þetta einhver fróður maður sem les þetta Blush
mbl.is Öskuský yfir suðurhluta Grænlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Málið er það að lægðir og hæðir blása vindinum í hringi þannig að þó að það sé éin ákveðin vindátt á gosstöðvunum þá fýkur askan eftir lægðar/hæðarkerfunum, og jafnvel á milli kerfa, auk þess þá er vinduppbyggingin í hálaoftunum öðruvísi.

Gestur (IP-tala skráð) 20.4.2010 kl. 16:44

2 Smámynd: Baldvin Kristjánsson

Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af okkur hér suður frá, hér eru hafnirnar lokaðar eins og alltaf á vorin af rekís frá austur Grænlandi.

Flug fer fram með þyrlum og ekki verður flogið héðan til útlanda fyrr en í maí, þegar Flugfélag Íslands kemur - og við fjölskyldan verðum á fyrstu vél til Íslands :-)

Hér er búið að vera sól og logn í margar vikur, búinn að mála húsið að utan, tilbúinn í sumarfríið... en í dag dró ský fyrir sólu, væntanlega öskuský...

með kveðju úr landnámi Eiríks rauða

Baldvin Kristjánsson, 20.4.2010 kl. 16:48

3 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Gestur :) takk fyrir þetta, kanski áttar maður sig aðeins betur á þessu núna :)

 Baldvin, hvar ert þú staddur ?? Á Grænlandi ??

Guðborg Eyjólfsdóttir, 20.4.2010 kl. 18:09

4 Smámynd: Baldvin Kristjánsson

í landnámi Eiríks rauða... 400 km fyrir sunnan Reykjavík

Baldvin Kristjánsson, 20.4.2010 kl. 18:56

5 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

400 km fyrir sunnan Reykjavík ?? það er nú ekki landnám Eiríks rauða þar, lengst út í ballarhafi

Guðborg Eyjólfsdóttir, 20.4.2010 kl. 20:16

6 Smámynd: Baldvin Kristjánsson

Suður er breiddargráða, við erum líka vestar... sem er lengdargráða.

Baldvin Kristjánsson, 20.4.2010 kl. 20:55

7 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Fyrirgefðu Baldvin, ég hlýt að vera svona vitlaus en allt sem er 400 km suður af Reykjavík er úti á hafi, skv mínum mælingum

Guðborg Eyjólfsdóttir, 20.4.2010 kl. 21:16

8 identicon

http://www.weather.gov.hk/wxinfo/climat/world/eng/europe/greenland/greenland_e.jpg

  Vona að þetta útskýri málið. Baldvin hefði kannski frekar átt að segja "sunnar en reykjavík"

 Kv Sveinn.

sveinn (IP-tala skráð) 20.4.2010 kl. 21:25

9 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Sveinn þakka þér fyrir SUNNAR er náttúrulega rétt ekki sunnan við Reykjavík :) skil þetta núna  búin að velta þessu mikið fyrir mér :)  Er ekki mjög góð í sögu eða landafræði hahaha

Guðborg Eyjólfsdóttir, 20.4.2010 kl. 21:33

10 Smámynd: Baldvin Kristjánsson

reyndar er þetta vitlaust hjá mér, suður er lengdargráða... og vestur breiddargráða...

Baldvin Kristjánsson, 20.4.2010 kl. 21:42

11 identicon

Það eru nú fleiri Íslendingar hérna á Grænlandi heldur en Baldvin og sitjum við hérna fastir og komumst ekki heim í fríið sem átti að hefjast í dag. Og héðan er flogið allt árið um kring til Kaupmannahafnar og svo einstaka leiguflug eins og með okkur sem vinnum hérna í Nalunaq heim til Íslands.

Guðborg, þessi blessaða aska er búin að fara í austur frá íslandi og yfir alla evrópu, taka smá sveig suður á bóginn og svo aftur í vestur þar sem hún kemur núna af suðri inná Grænland. En lokun flugvalla hérna á suður Grænlandi verður endurskoðuð á miðnæti í kvöld að staðartíma.

Sölvi Borgar (IP-tala skráð) 20.4.2010 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband