Ég blogga af því að ...........

Ég get sagt ykkur það kæru bloggvinir að eftir að ég komst í samskipti við ykkur líður mér mikið betur. Ég er búin að vera að berjast við depurð í allan vetur og að fara að skrifa hérna inn og fá svar frá ykkur það bara er búið að halda mér gangandi. Þótt ég eigi yndilegan mann og börn, fjölskyldu og vini þá er þetta allt öðru vísi. Maður hefur eitthvað að hlakka til þegar maður kemur heim úr vinnunni. Kíkja í tölvuna og sjá hverjir eru búnir að svara og svara þeim til baka og svo frv.

Ég nota Barnaland til þess að auglýsa eitthvað ef ég þarf að selja eitthvað og svo er ég náttúrulega með síður fyrir stelpurnar mínar. En að taka þátt í umræðum þar er bara mannskemmandi. Það er gert lítið úr öllum þar fólk talar undir dulnefni og leyfir sér að segja ógeðslega hluti um allt og alla.

Bloggið er númer 1 2 og 3


mbl.is Blogg gegn þunglyndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

Frábært hjá þér að deila þessu með okkur. 

Veistu, bloggið getur líka verið vanabindandi heh

Láttu þér líða vel og við sjáumst um páskana

Kolbrún Jónsdóttir, 11.3.2008 kl. 10:01

2 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Takk fyrir það Kolla mín, sjáumst

Guðborg Eyjólfsdóttir, 11.3.2008 kl. 10:25

3 identicon

Ég er algjörlega sammála þér og hef sömu sögu að segja (næstum því).  Gangi þér vel Guðborg mín.

Ella Kata (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 12:29

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir að vera svona hreinskilin, ég er sammála þér.
                          Blessi þig snúllan mín
                                   Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.3.2008 kl. 12:55

5 Smámynd: Brynja skordal

þú ert yndi og já það er frábært að eiga góða bloggvini gefur lífinu lit knús til þín

Brynja skordal, 11.3.2008 kl. 14:06

6 Smámynd: www.zordis.com

Það er frábært að finna sig í blogginu og geti fengið góð og heiðarleg svör frá bloggvinum.  Það er vissulega gaman að hafa svona síðu og hún getur gert heilmikið fyrir okkur!

Knús á þig

www.zordis.com, 11.3.2008 kl. 14:29

7 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

'Eg er allveg hjartanlega sammála þér í þessu...'Aframm blogg  koss og knús Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 11.3.2008 kl. 20:52

8 identicon

Lífsgleði er nauðsinlegur þáttur í lífi okkar allra,gott er að vita að enginn getur gefið okkur hana nema við sjálf en við notum misjafnar aðferðir til að nálgast hana.Þetta er ein af þínum - mínum- og margra annara.Vonandi á ég eftir að lesa mörg blogg frá þér og vonandi ertu orðin góð af veikindunum.

Knúsaðu svo frænkur mínar, sem auðvitað eru dætur þínar frá mér og Ástu.

Linda (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 21:15

9 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Hlynur: Sjáumst um páskana

Ella Kata: takk sömuleiðis

Milla: takk sömuleiðis. Blessi þig líka mín kæra

Brynja: Þú ert sko yndi líka knús til þín líka

Zordis: Nákvæmlega og knús til þín

Allý: Sammála áfram blogg kossar og knús á þig líka mín kæra

Linda: Já það hefur hefur verið pínu skortur á henni hjá mér undanfarið en þetta er allt að koma og það er náttúrulega enginn nema við sjáf sem að stjórnum því. Ég held að ég verði hérna í bloggheimum áfram með þessu áframhaldihaha.  Varðandi veikindin þá er ég miklu betri, ég hélt á tímabili um helgina að ég væri hreinlega að deyja ég get svo svarið fyrir það.  Ég skal knúsa frænkurnar þínar frá þér og Ástu Sóley og bið kærlega að heilsa ykkur öllum og bara kossar og knús á línuna

Guðborg Eyjólfsdóttir, 11.3.2008 kl. 21:43

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig Guðborg mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2008 kl. 17:24

11 Smámynd: Margrét M

jamm það gertur verið gott að skrifa

Margrét M, 12.3.2008 kl. 17:25

12 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Knúa á þig.....

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 12.3.2008 kl. 18:40

13 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Takk elskurnar.

Guðborg Eyjólfsdóttir, 12.3.2008 kl. 20:10

14 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

takk fyrir hreinskilnina..

Agnes Ólöf Thorarensen, 13.3.2008 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband