Nunnur á gangi

Einu sinni voru tvær nunnur á gangi í gegnum skóginn.

 

Önnur þeirra gekk undir viðurnefninu Systir Stærðfræði (SS), En hin var kunn undir viðurnefninu Systir Rökrétt (SR). Það var farið að dimma og þær áttu ennþá langt eftir á áfangastað. SS: Hefurðu veitt því athygli að síðustu 38 og hálfa mínútu hefur okkur verið veitt eftirför af einhverjum manni? Ég velti því fyrir mér hvað hann ætli sér. SR: Það liggur ljóst fyrir að hann ætlar sér að gera okkur eitthvað. SS: Almáttugur minn! á þessum tímapunkti mun hann ná okkur innan 15 mínútna hið minnsta! Hvað getum við gert? SR: Það eina rökrétta í stöðunni er auðvitað að labba hraðar.

Stuttu síðar: SS: Það er ekki að ganga upp. SR: Auðvitað er það ekki að ganga upp. Maðurinn gerði það eina rökrétta ístöðunni. Hann fór líka að labba hraðar. SS: Hvað eigum við þá að gera? Á þessari stundu mun hann ná okkur innan einnar mínútu. 

SR: Það eina rökrétta í stöðunni fyrir okkur er að fara sitt í hvora áttina.

 Þú ferð þessa leið og ég tek hina leiðina. Þá getur hann ekki elt okkur báðar. Því næst ákvað maðurinn að elta Systur Rökréttu.

Systir Stærðfræði komst á áfangastað heilu á höldnu en hafði áhyggjur af því hvernig Systur Rökrétt hefði reitt af. Eftir nokkra mæðu kemur Systir Rökrétt loks á áfangastað. SS: Systir Rökrétt ! Guði sé lof að þú sért komin! Hvað gerðist? SR : Þar sem maðurinn gat eðlilega ekki elt okkur báðar, þá valdi hann þannmöguleika að elta mig.

 

SS: Já, Já! En hvað gerðist svo?  SR: Nú ég reyndi að hlaupa eins hratt og ég gat, en þá fór hann einnig aðhlaupa eins hratt og hann mögulega gat. SS: Og? SR: Það eina rökrétta gerðist á þessum tímapunkti. Hann náði mér.

 

SS: Guð minn góður! Og hvað gerðir þú? SR: Það eina rökrétta sem ég gat gert og gerði.. Ég lyfti pilsi mínu upp.  SS: Oh, vesalings Systir! Hvað gerði maðurinn?  SR: Það eina rökrétta fyrir hann í stöðunni. Hann gyrti niður um sig.

SS: Æii, nei!! Hvað gerðist svo? SR : Liggur það ekki í augum uppi, Systir? Nunna með pilsið upp um sig  hleypur hraðar en maður með buxurnar á hælunum.

Datt ykkur eitt andartak í hug að ég væri að segja ykkur dónabrandara!!!!!!!  Guð hjálpi ykkur. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

heheh ég veit ekki hvað á að segja þegar nunnur er aðalsöguþráðurinn en ég hló hann er góður...takk fyrir skemmtunina

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 15.4.2008 kl. 18:11

2 identicon

Geðveikt góður !  Ég taldi mig vera að lesa dóna-brandara, ég er greinilega ekki eins saklaus og ég hélt......

Ella Kata (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 23:20

3 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Hahah já maður heldur að allt verði voða dónó þegar maður les þetta

Guðborg Eyjólfsdóttir, 16.4.2008 kl. 06:58

4 Smámynd: Margrét M

jammm þessi er góður

Margrét M, 16.4.2008 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband