Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Próf framundan og bíllinn í viðgerð

Jæja þá er ég að fara í enn eitt prófið á mánudaginn og er með pínu kvíðahnút fyrir því, ég er bara svona týpísk kona sem þarf allaf að kvíða fyrir öllu saman Tounge En ég vona bara að ég nái þessu eins og síðasta prófi, fékk 7 í því en ég þarf að fá 7 í meðaleinkunn til að ná þessum prófum í heildina, þannig að vonandi fæ ég eitthvað aðeins meira en 7 til að ná mér í smá forskot.

Er að fara með bílinn minn á verkstæði á mánudaginn, því að vinnufélagi minn bakkaði á hann, ég fór að hugsa þegar ég var að athuga með verkstæðispláss fyrir hann hvað ég væri búin að eiga marga bíla og hvað væri búið að klessa marga af þeim og komst að niðurstöðu að ég er búin að eiga 10 bíla frá upphafi og það er búið að klessa 7 þeirra og persónulega hef ég aldrey séð um að sjálf að klessa þá, þetta er dáldið skrítið Police Nú held ég að ég verði að fara að hætta að lána bílana mína. hummmm

NautNaut: Það er meira áríðandi að vita hvað þarf að gera, en að gera það. Það er viturlegt að hefjast ekki handa við verkefni dagsins án þess að skipuleggja sig.


Á nú að fara að fá Danina í hóp með Bretunum

Þetta er alveg skelfilegt, að fólk skuli ekki fá greitt fyrir oktober mánuð, og nú verða 1100 Danir brjálaðir út í okkur Íslendinga og allir sem tengjast þessum 1100 Dönum. Ætli við fáum kanski önnur hryðjuverkalög á okkur.

 


mbl.is Starfsmenn Sterling reiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk Færeyjar !!!!!!

Það er gott að eiga góða, það sýnir sig núna. Takk fyrir þetta


mbl.is Siðferðileg skylda að hjálpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningarnir týndir

Ég skora á Glitni að láta hana hafa þessa peninga á gamla genginu, svo hún geti farið með barnið sitt í þessa meðferð.


mbl.is Lokagreiðsla vegna Ellu Dísar týnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta sannar bara að þeir vita ekkert hvað þeir eru að gera

Þessi stýrivaxtahækkun sýnir bara og sannar að þetta eru bara bjánar þarna sem stjórna þessu vita ekkert hvað þeir eru að gera. Það er eitt í dag og annað á morgum
mbl.is Harkalega skipt um gír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú eruð þið alveg búnir að mála ykkur út í horn

Hvað er að ykkur þarna stjórnmálamenn, er ekki búið að herða sultarólina nóg á þjóðina. Hver græðir mest á þessu eru það ekki þeir sem eiga peningana?? þeir fá hærri innlánsvexti og við hin sem skuldum upp fyrir hæðstu hæðir getum farið og étið það sem úti frýs. Ég held að nú sé best að gefa skít í þetta allt saman og koma sér úr landi
mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 6 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Darling don´t lie to us

Jæja, þarna kom vel á vondann LoL  eins og máltækið segir sá hlær best sem síðast hlær, ég er nú hrædd um að Darling eigi eftir að falla á vinsældalistanum við þetta Happy
mbl.is Fullyrðingar Darlings dregnar í efa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er eitt gott sem hlýst af þessu öllu saman .......

Lögfræðingar fá allavega nóg að gera Wink  
mbl.is Innistæðueigendur fara í mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Asshole

Það er ýmsikonar reiði sem að maður glímir við í dag, ein þeirra er gagnvart þessu brúna asna þarna í Bretlandi, sem er búin að koma okkur á heimskortið sem hryðuverkamönnum ef ég myndi komast í tæri við hann myndi ég hrækja á hann og hana nú ógeðið þitt.

Fékk þessa mynd lánaða af http://photo.blog.is/blog/photo/ 

0810_Gordon_Brown_heil_hitler


mbl.is Líkur á samdrætti í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanskil - vanskil - vanskil

Mig langar að vita hvað þetta þýðir allt fyrir Íslensku þjóðina ?? Á maður að fara að koma sér úr landi ? Erum við að fara margar aldir aftur í tímann í sambandi við lífsgæði ?? Manni er eiginlega ekki farið að standa á sama og gott væri að fara að fá einhver skýr svör frá þessum ríkisstjórnar bubbum. Það er nú eiginlega bara farið að fjúka í mann með þetta allt saman.
mbl.is Vanskil af samúræjabréfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband