Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Próf í gær og annað á laugardaginn

Jæja það gekk bara nokkuð vel í prófinu í gær held ég en það kemur reyndar í ljós eftir ca 2 vikur hvað ég fékk í því það gildir 50% prófið sem ég var í , í gær svo prófið sem ég fer í á laugardaginn gildir 50% á móti þannig að nú er bara að krossa fingur og gera sitt besta Smile

22. nóv ætlum við hjónin á Hótel Örk með vinnufélögum mínum ég hlakka mikið til að fara í burtu og þá ætla ég gjörsamlega að loka á allar skuldahugsanir og vandamál og skemmta mér fram á rauða nótt

Stjörnuspáin mín fyrir daginn í dag :

NautNaut: Þú ættir kannski að segja frá því sem þú vilt helst halda fyrir sjálfan þig. Gerðu það fyrir alla muni því vináttuvottur, þótt lítill sé, gleður mannsins hjarta.


23% hækkun frá áramótum ekki svo mikið

Mér finnst nú 23% hækkun ekki svo mikið miðað við það að skuldirnar mínar eru búnar að hækka um 130% frá áramótum, þar sem allar mínar skuldir eru í erlendri mynt, og er ég satt að segja alveg hreint að gefast upp á þessu öllu saman Crying
mbl.is Skuldir heimilanna 1.030 milljarðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband