Þetta á líka við um Íslendinga

Maðurinn minn er búinn að vinna núna í 2 ár í Noregi og hann þurfti að fá norksa kennitölu og flytja lögheimilið sitt til Noregs núna í Janúar, þannig að það eru ekki bara svíar sem er fúlir líka Íslendingar :)
mbl.is Vilja að Svíar verði norskir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað er að því að fá sér norska kennitölu og hver verður "norskur" við það? Fáránleg frétt og titillinn hlægilegi aum bellibrögð til að fá mann að lesa þessa ófréttnæmu og drepleiðinlegu "frétt".

Geips (IP-tala skráð) 7.2.2011 kl. 09:51

2 identicon

Er þetta ekki bara ágætt fyrir okkur íslendinga? Við eigum þá möguleika á að fá vinnu í Noregi því ekki er mikið um lausa vinnu hér á Íslandi.

Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.2.2011 kl. 10:54

3 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Jú þetta er örugglega ágætt, ég veit það ekki  þetta á eftir að koma í ljós hvernig það verður þegar annar aðilinn í hjónabandi á lögheimili í öðru landi en þar sem konan hans og börnin búa :) kanski kemur þetta bara vel út, ég get nú varla trúað því að skattmann fari fram á það að maður með lögheimili í Noregi þurfi að gefa upp tekjur sínar á Íslandi og þá fæ ég fullt af barnabótum og vaxtabótum   það gæti orðið spennandi :))

Guðborg Eyjólfsdóttir, 7.2.2011 kl. 10:59

4 identicon

Það er eitthvað ekki rétt í þessari frétt. Skil ekki alveg hvernig norðmenn ætla að banna þeim sem hafa lögheimili í Svíþjóð og vinna í Noregi að vera þar á sænskum bílum,  þetta ætti að vera öfugt, ef þeir færa lögheimilið til Noregs mættu þeir ekki aka á bílum sínum lengur í Noregi,  þannig er það í Danmörku. Maður þarf alltaf að hafa kt til að vinna í landinu, það er allstaðar þannig, óháð því hversu lengi þú ætlar að vinna þar. 

Bý sjálfur í Padborg Danmörku, 20 mínútna labb frá landamærum Þýskalands. Á mínum vinnustað er meirihluti starfsmannanna þýskir og búa þýskalndsmegin (í Flensburg). Þeir eru allir með danska kennitölu, en þeir verða að hafa hana til að vinna, hinsvegar eru þeir allir með lögheimili í þýskalandi og þar að leiðandi meiga þeir aka bílum sínum á þýskum númerum í Danmörku, ef þeir væru með lögheimili í Danmörku þyrftu þeir að hafa dönsku númer á bílum sínum og mættu ekki keyra þýska bíla í Danmörku.

Sama gildir lílegast um þann fjölda svía og dana sem búa í Malmö í svíþjóð og fara til Danmerkur til vinnu.

Árni (IP-tala skráð) 7.2.2011 kl. 11:40

5 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Kallinn minn er búinn að vera að vinna í Noregi í 2 ár hann fékk strax kennitölu en það var bráðabirgða kennitala, þegar hann þurfti að sækja um skattkort nú aftur í byrjun þessa árs þá var honum gert það að sækja um varanlega kennitölu og færa lögheimilið til Noregs eða hann myndi þurfa að hætta að vinna þar, hann er með bíl þar á íslenskum númerum sem hann fór með út í febrúar 2010, nú veit maður ekki hvernig verður með bílinn þegar hann er búinn að færa lögheimilið þarna yfir   þetta veður eitthvað skrítið allt saman

Guðborg Eyjólfsdóttir, 7.2.2011 kl. 11:59

6 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Svona er þetta hér á Íslandi og ekki heyrir maður fólk kvarta yfir því.

Þetta er minna mál en menn halda og snýst aðallega um að halda utan um réttindi og skyldur aðilanna.

Þetta er aðeins flóknara á Íslandi núna en áður því vegna gjaldeyrishafta þá mega útlendingar sem vinna á Íslandi en eiga maka og börn í útlöndum ekki senda launin heim til að standa undir framfærslu þeirra.

Það er nú eiginlega stærri frétt en þessi.

Lúðvík Júlíusson, 7.2.2011 kl. 12:00

7 identicon

Með því að flytja lögheimilið til Noregs býst ég við að hann þurfi að skrá bílinn þar og borga af honum himinháa skatta lagalega séð. En það er svo spurning hvort að einhver sé að athuga hvort hann geri það.

Árni (IP-tala skráð) 7.2.2011 kl. 12:08

8 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Lúðvík það er alveg hægt að millifæra peninga til annara landa !!

Árni ég reikna nú með að hann komi bara með hann heim áður en til þess kemur, því það eru engar smá upphæðir sem að þarf að borga þarna í Noregi fyrir bíla sem eru fluttir inn í landið og skráðir þar og mér skilst að það sé rándýrt að kaupa bíl í Noregi líka

Guðborg Eyjólfsdóttir, 7.2.2011 kl. 12:58

9 identicon

Láttu mig þekkja það, gjöldin hér í Danmörku eru 180% af virði bílsins sem þýða 1,8 miljón í skráningargjöld af fólksbíl sem var keyptur á 1 miljón. Hef þessvegna minn bara áfram á íslenskum plötum, ekki verið vandamál hingað til

Árni (IP-tala skráð) 7.2.2011 kl. 13:02

10 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Guðbjörg, það er bannað samkvæmt reglum Seðlabankans sem styðst við lög sem sett hafa verið á Alþingi að vinna hér á landi og millifæra síðan launin út til að standa undir framfærslu.

Undir það tekur Seðlabankinn.

Ef þú veist um tilfelli þar sem verið er að brjóta gjaldeyrishöftin, vinna gegn markmiðum þeirra og stuðla að veikingu krónunnar, þá ættir þú kannski að tilkynna það.  Er ekki ein ástæða hrunsins sú að ekki var farið eftir lögum og reglum?

Lúðvík Júlíusson, 7.2.2011 kl. 13:17

11 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Þetta er úr bréfi sem Seðlabankinn sendi mér þar sem ég spurðist fyrir um þetta:

Það fer eftir skráðu lögheimili einstaklings hvort hann er innlendur eða erlendur, ef hann er með skráð lögheimili á Íslandi. Í 2. mgr. 11. gr. reglna nr. 880/2009 segir að erlendum aðila sé heimilt að flytja laun, sem hann hefur alfað hér á landi sl. sex mánuði, úr landi. Sama á við um laun innlends aðila, sem hann hefur aflað erlendis. Samkvæmt því sem fram kemur í pósti þínum ert þú innlendur aðili sem hefur hug á að flytja laun, sem þú aflar hér á landi út. Því þyrfti að sækja um undanþágu fyrir þeim flutningi til Seðlabankans. Umsóknin er bréfleg, þar sem sótt er um undanþágu fyrir flutningi á ákveðinni upphæð.
Ríkisborgarar ríkja EES og ESB sem hafa starfað lengur en 6 mánuði á Íslandi verða að gerast innlendir aðilar, þrátt fyrir að eiga fjölskyldur erlendis.
 
Fram til dagsins í dag hafa engar undanþágur verið veittar.
 
Þú mátt ekki skilja það þannig að ég styðji þessar fáránlegu reglur.  Ég hef barist gegn þeim frá upphafi við lítinn fögnuð.
 

Lúðvík Júlíusson, 7.2.2011 kl. 13:24

12 identicon

Árni þá er vonandi að ekkert komi fyrir þig á bílnum svona tryggingalega séð -  eigandinn/ökumaðurinn með lögheimili i öðru landi en billin er skraður gæti reynst dýrt Er eg bjo i Noregi fyrir 25árum var hægt að vera með bil á ísl numeri i ár (ísl kaskó/norsk ábyrgð) hef hinsvegar aldrei reynt að vera á íslenskumnumera plötum hér í DK hef keyrt á dönskum og borgað gjöldin með glöðu geði frá 1994

nolli (IP-tala skráð) 7.2.2011 kl. 15:45

13 identicon

Nolli: Borga tryggingar og bifreiðagjöld á íslandi, ef bílinn er löglegur á íslandi þá er hann löglegur í öllum löndum ESB og EES. Tryggingarnar gilda hér jafnt sem á íslandi.  Hef einu sinni lent í tjóni hér þar sem það var keyrt á mig, var dæmdur í 75% rétti, ferlið virkaði alveg eins og það er á íslandi, tjónaskýrsla var fyllt út og send í tryggingafélagið mitt og hins aðilans. Fór á réttinga verkstæði og lét laga bílinn. Fer líka árlega með hann í skoðun hérna, skoðunarskýrslan er föxuð til íslands og ég fæ nýja miða senda í pósti. 

Árni (IP-tala skráð) 7.2.2011 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband