Nóg að gera og árshátíð framundan

Jæja smá færlsa svona til að segja HALLÓ við ykkur kæru bloggvinir, hef ekki haft mikinn tíma aflögu til að blogga, er að kafna í vinnu þannig að ég þarf að láta hana ganga fyrir.

En um helgina ætlum við hjónakornin að hafa það næs og fara á árshátíð með vinnunni minni á Hótel Örk og það verður bara yndislegt. Ég er búin að vera að safna happadrættisvinningum sem að verða dregnir út á árshátíðinni þannig að allir eru mjög spenntir Grin Mig hlakkar mikið til að komast aðeins í burtu frá heimilisstússi og láta aðra sjá um það á meðan.

NautNaut: Gamlir vinir koma til sögunnar og það verður þér til mikillar ánægju að rifja upp gömul kynni og stofna til nýrra. Vertu opinn og fordómalaus, þegar nýjungar banka upp á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Skemmtu þér vel Guðborg mín alltaf gaman að fara svona og vera út af fyrir sig sko ég meina yfir nóttina.
Knúsí knús
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.11.2008 kl. 13:36

2 Smámynd: www.zordis.com

Ég hélt líka ad Arkarhelgin vaeri yfirstadin en ég óska zér gódrar helgar í Hveragerdi. Vid verdum nánast hlid vid hlid! Ég á bekkjar reúnioni í Zorlákshöfn og zú á árshátid í Húrígúrí eins og oft er sagt í grini. Góda skemmtun!!!

www.zordis.com, 19.11.2008 kl. 13:44

3 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Njóttu þess í botn elskan mín. Alltaf svo æðislegt að komast aðeins í burtu.

Knús

Elísabet Sigurðardóttir, 19.11.2008 kl. 14:01

4 identicon

Góða skemmtun í Hveró.

Bara panta einn skjálfta og þið þurfið ekkert að hafa fyrir nóttinni svo er bara að slaka á og vona að það skjálfi ekki meira HE HE HE

Linda Björk (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 23:04

5 Smámynd: Margrét M

skemmtu þér sem allrabest .. góða helgi

Margrét M, 22.11.2008 kl. 16:55

6 Smámynd: Brynja skordal

Heyrðu var líka á örkinni á sama tíma sko en var samt að leita af þér hehe getur verið að ég hafi séð þig í morgunmatnum sátu þið 4 saman? var ekki viss hvort þetta væri þú og þess vegna kunni ég ekki við að spyrja En ég var þarna með mínum kalli og var í svartri hettupeysu sástu mig??

Brynja skordal, 26.11.2008 kl. 13:13

7 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Takk fyrir þetta kæru vinkonur, Brynja veistu það að mér var litið á eina konu og datt þú í hug en hugsaði að það gæti ekki verið  en þá var það bara þú  en gaman . Skemmtir þú þér ekki vel, eða varst ekki á jólahlaðborðinu líka ?? Jú ég sat þarna með hjónum, maðurinn er að vinna með mér og svo var það konan hans og kallinn minn á móti mér

Guðborg Eyjólfsdóttir, 27.11.2008 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband