Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Krúttlegt

Það var nú ekki annað en hægt að hlæja að þessar frétt og maður sér alveg blessað barnið fyrir sér þegar lögreglan setti ljósin á hann hefur orðið alveg skelfingu lostinn, og á örugglega ekki eftir að reyna að strjúka aftur af leikskólanum.   Svo er talað um hann eins og hann sé góðkunningi lögreglunnar þegar þeir segja að hann hafi á sér orð fyrir að príla. haha snilld

 

NautNaut: Það hentar þér betur að einbeita þér að einu í einu en að gera margt í einu. En þú getur skipt um verk eftir tvo tíma. Það svínvirkar.

mbl.is Flótti úr leikskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langar þið að verða hamingjusamur

Ef svo er þá er reikningsnúmerið mitt 1109-26-23456 kt: 101010-1019 . Þú mátt alveg leggja þitt af mörkum svo þú verðir hamingju samur hahaha ( Smá aulafyndni svona á laugardagsmorgni )
mbl.is Peningar veita hamingju - séu þeir gefnir öðrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kýr????????

Ég get nú ekki séð betur á þessum mydnum að þetta séu naut ekki kýr. En pínu fyndið samt hlaupandi naut út um allt, þau hafa fundið að það ætti að fara að drepa þau og ákveðið að flýja greijin LoL

 p.s. ég er í nautinu haha

NautNaut: Reyndu að hresa upp á hugsanaganginn sem er þarft en ekki létt verk. Sumar hugsanir sitja sem fastast og mynstur eru þrautseig. Náðu stjórn á hugsunum og heimurinn hlýðir þér.


mbl.is Sluppu á leið á sláturhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega páska kæru bloggvinir og aðrir vandamenn

Jæja nú er maður loksins kominn í páskafrí, ef frí má kalla verð reyndar á kafi í skattaskýrlslum alla páskana, en ég sé þó allavega fram úr því. Ætlaði vestur í Búðardal í dag en það varð ekki úr því, en ég ætla að fara og sækja hjólhýsið mitt og fara að gera það klárt til ferðalaga, ég get ekk beðið með að fara að komast eitthvað út í buskann og gleyma mér úti í náttúrunni.  Svo þarf ég nú að taka heimilið í gegn allt á hvolfi hérna.

Kallinn búinn að vera setja upp innréttingu í þvottahúsinu okkar og ég er ekkert smá ánægð með hana kanski ég skelli bara inn einni mynd af henni til að monta mig :)

tvottur

 

Gleðilega páska

 

NautNaut: Að vera öruggur og virðast vera það er jafn árangursríkt. Ekki hafa áhyggjur ef þú ert ekki of sterkur hið innra. Kannski að öðrum líði eins


Get ekki samþykkt bloggvini er það eins hjá ykkur

Það er ekki hægt að samþykkja bloggvini eruð þið í sömu sporum ??

Á mannamáli????

Getið þið sagt mér á mannamáli hvaða kosti og galla það hefur fyrir þjóðina okkar ef við göngum í Evrópusambandið og tökum upp Evru og annað. Maður hefur aldrei fengið að vita það skýrt hvernig þetta yrði það eru bara einhverjir kallar einhverstaðar sem að kalla sig stjórn sem að ákveða það að við eigum ekki að gera þetta.

Yndilegt að hún skuli vera á lífi

Það er alveg yndislegt að þessi stelpa hafi fundist á lífi ég óska þess bara að Madeleine finnist líka þótt líkurnar á því hafi minnkað allverulega.
mbl.is Shannon Matthews fannst á lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að verða um þetta þjóðfélag

Dæma 11 ára gamalt barn til að greiða kennaranum 10 miljónir. Maður er bara orðlaus. Og að þessi kennari skuli bara yfirleitt hafa kært stelpuna fyrir þetta. VÁ þetta er bara að verða eins og Ameríka hérna það má ekki ropa á vitlausum stað án þess að vera kærður. Og hana nú.
mbl.is Dæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert til að gera grín að

Þetta er hræðilegur atburður og er sko ekkert til að gera grín að. Það er óskandi að hann fái viðeigandi hjálp, Því þetta er ekkert annað en kall á hjálp. Ég get ekki séð betur en að þetta sé góður vinur minn þarna á ferð.  Guð hjálpi honum og fjölskyldu hans.
mbl.is Lokaði sig inni með haglabyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég blogga af því að ...........

Ég get sagt ykkur það kæru bloggvinir að eftir að ég komst í samskipti við ykkur líður mér mikið betur. Ég er búin að vera að berjast við depurð í allan vetur og að fara að skrifa hérna inn og fá svar frá ykkur það bara er búið að halda mér gangandi. Þótt ég eigi yndilegan mann og börn, fjölskyldu og vini þá er þetta allt öðru vísi. Maður hefur eitthvað að hlakka til þegar maður kemur heim úr vinnunni. Kíkja í tölvuna og sjá hverjir eru búnir að svara og svara þeim til baka og svo frv.

Ég nota Barnaland til þess að auglýsa eitthvað ef ég þarf að selja eitthvað og svo er ég náttúrulega með síður fyrir stelpurnar mínar. En að taka þátt í umræðum þar er bara mannskemmandi. Það er gert lítið úr öllum þar fólk talar undir dulnefni og leyfir sér að segja ógeðslega hluti um allt og alla.

Bloggið er númer 1 2 og 3


mbl.is Blogg gegn þunglyndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband