Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Mjög skemmtileg mynd greinilega

Stelpurnar mínar fóru á þessa mynd á sunnudaginn og það var talað um hana í nokkra klukkutima á eftir, sem ég hef aldrei heyrt þær áður gera þegar þær fara í bíó, þeim fannst myndin algjört æði. Þannig að 10 stig frá þeim
mbl.is Flestir sáu Algjöran Sveppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er eiginlega í gangi hérna

Maður er alveg hættur orðinn að botna í fólki hérna á Íslandi þetta er að verða eins og villta vestrið þetta land. Hvað græða land og þjóð á þessu ?? Ég bara spyr. Hærri gjöld á tryggingum ekkert annað. Skammist ykkar þið sem voruð þarna að verki.
mbl.is Miklar skemmdir unnar á vinnuvélum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjúklingaréttur

Ákvað að skella þessu hérna inn og leyfa þeim sem áhuga hafa á að prufa þennan einstaka kjúklingarétt sem ég fékk uppskrift af hjá Matta og Sirrý. Geggjaður

4 bringur láta liggja í olíu með smá fahitas kryddi í 2-3 tíma (Ekki of mikið krydd) skera þær í sæmilega bita og steikja á pönnu

1. pk rjómaostur og ca 1 bolli salsa sósa (mild) sett í pott og hitað saman

Rauðlaukur, paprika rauð, gúrka, tómatar og fleira grænmeti ef þú vilt ( ég notaði þetta ), brytjað frekar smátt og blanda öllu í skál

Doritos appelsínugulur, rifinn ostur

Setja rjómaostasósuna í eldfast mót setja svo doritos, kjúkling,grænmeti,ost,meiri ostasósu, svo slatta af salsa sósu líka svona allt til skiptis og enda svo á að setja ost yfir og hita þetta í ofni ca 20 mín þetta er besti réttur sem ég hef smakkað :) bara nammi.


Barn í stolnum barnavagni

Ekki myndi ég hafa áhuga á að láta barnið mitt sofa í stolnum barnavagni eða bara að vera í nokkru öðru sem hefur verið stolið.  Nú er svo komið að 2 hlaupahjól er horfin af mínu heimili og Guð má vita hvar þau eru niðurkomin, þessi hlaupahjól voru bæði keypt núna í sumar og yngri dóttir mín sem á þau eru alveg niðurbrotin út af þessu , ef þetta er það sem koma skal að maður geti ekki verið öruggur með eigur sínar fyrir þjófagengi þá veit maður ekki hvernig þetta endar.
mbl.is Stálu barnavagni í verslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband