Sultutauj

Jæja við familýan vorum svaka dugleg í dag fórum á rúntinn á nýja bílnum austur í sveitir að tína ber og ég var með það í huga að gera sultu. Mig langar að prufa að gera bæði sultu bara úr krækiberjum og síðan úr rabbabara og krækiberjum saman, er einhver hérna með góðar sultu uppskriftir ??

Kveðja húsmóðirin mikla í Njarðvíkinni Blush


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgerður

Það á öruggleg einhver uppskrift fyrir þig. Til hamingju með nýja bílinn

Knús á þig mín kæra

Ásgerður , 28.9.2008 kl. 09:38

2 Smámynd: Elenora Katrín Árnadóttir

Rabbabara-Rúna

Elenora Katrín Árnadóttir, 28.9.2008 kl. 13:10

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Í Gestgjafanum nýja er fullt af sultuppskriftum og það er gott að eiga eitt svona blað, þá getur þú lika fundið það sem þú villt.
Og mikið rosalega ertu dugleg, bara alveg eins og við þessar gömlu
Knús knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.9.2008 kl. 17:18

4 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Takk fyrir þetta stelpur, mér líst vel á þetta með Gestgjafann þarf að eignast hann, fór að gera sultu í gær bara svona upp á Guð og lukkuna  hún er bragðgóð það vantar ekki, en hún er allt of þunn, hvað gera bændur þá ??

Milla maður er að reyna að klóra í bakkann með því að reyna að vera þjóðleg, maður fer kanski að þurfa að lifa á landinu ef þetta fer ekki að lagast þetta ástand í þessu þjóðfélagi   Búa til slátur osfrv.

Guðborg Eyjólfsdóttir, 29.9.2008 kl. 10:09

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Dúllan mín þú tekur alla sultuna setur hana aftur í pottinn og setur meiri sultuhleypir, við þurftum að gera það með bláberjasultuna, en ef þetta er rabbbarasulta þá hefur þú ekki soðið hana nógu lengi.
Gangi þér vel knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.9.2008 kl. 10:17

6 Smámynd: Margrét M

gestgjafinn stendur með þér í þessu

Margrét M, 29.9.2008 kl. 15:52

7 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Takk fyrir þetta Milla mín, þetta var blanda af rabbabarra og krækiberja sultu og hún er mjög bragðgóð en vantar þykktina, þannig að ég ætla bara að gera það sem þú segir henda þessu aftur í pott og setja hleypir í  ég læt ykkur vita þegar það er búið hvernig gekk

Margét takk fyrir þitt innlegg, ég held ég fari og kaupi Gestgjafann

Guðborg Eyjólfsdóttir, 30.9.2008 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband