Ég á 4 mánaða afmæli eftir 3 daga :)
13.12.2008 | 23:22
Obama þú getur alveg hætt að reykja fyrst að ég gat það, það er alveg nokkuð ljóst, ég á fjögurra mánaðar afmæli núna 16 des og mig langar ekki einu sinni í sígarettu, var algjör stórreykingarmanneskja reykti 2 pakka á dag, þannig að ég segi bara ef að ég get hætt þessu þá geta það allir :)
Húrra fyrir mér :)
Hvattur til að hætta alveg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Frábært! Gangi þér vel. Ég hætti fyrir rúmum fjórum árum og fann fljótt muninn! Þetta var mun auðveldara en ég hélt! First við getum þetta, þá geta þetta allir!
Jólakveðja,
Steini
Steini (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 23:47
Takk fyrir það Steini og til hamingju með það
Jólakveðja til baka :)
Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.12.2008 kl. 09:01
HÚRRA FYRIR ÞÉR , er svo stolt af þér,,,vissi alveg að þú gætir þetta,,þú þurftir bara sjálf að trúa því
Knús á þig mín kæra
Ásgerður , 14.12.2008 kl. 09:31
frábært
Margrét M, 14.12.2008 kl. 09:45
Obama getur alveg hætt eins og þú og ég fyrir 9 árum!
www.zordis.com, 14.12.2008 kl. 17:27
Takk Ásgerður þú hafðir alltaf trúnna á mér Dóra mæli með að þú hættir það er ekkert mál og heimilisfólkið býr enn á heimilinu Margrét Þórdís húrra fyrir þér 9 ár
Guðborg Eyjólfsdóttir, 15.12.2008 kl. 12:12
Til lukku með það.!!!!
þetta er ekkert mál. :)
Hætti fyrir 13.árum með viljan að vopni og sakna þess ekkert.
Eigðu góðan dag mín kæra. :)
Sigrún Þórey (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 13:18
Til hamingju mikið er ég stolt af þér Ég hætti 2003 og 15 kílóum en það er bara allt í lagi það er hægt að klípa í eitthvað núna .En húrra fyrir þér Eigðu góða daga .Kem við aftur Kvitt kvitt ,Óla
Ólöf Karlsdóttir, 15.12.2008 kl. 14:32
Dóra taktu Guðborgu þér til fyrirmyndar Þú getur það
Ólöf Karlsdóttir, 15.12.2008 kl. 14:34
ALdeilis flott, mundu bara að það er aldrei of varlega farið. Þessi fjandi laumast í undirmeðvitundinni í áratug minnst. En innilega til lukku með að vera hætt Guðborg mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.12.2008 kl. 11:00
Takk fyrir þetta stelpur mínar það er í dag :) afælið ég er svo ánægð með þetta hef oft reynt áður að hætta og allaf guggnað og verið stöðugt að hugsa um þetta, en núna bara er eins og ég hafi aldrei reykt það er svo fjarri mér
Guðborg Eyjólfsdóttir, 16.12.2008 kl. 12:44
Já til hamingju með að vera hætt.Ég líka síðan 13-11-08 bara mánuður en samt það eftir að hafa reikt í 40 árBestu kv Gjuggí mín
Guðrún Pálína Karlsdóttir, 16.12.2008 kl. 21:11
Til hamingju með 4ra mánaða afmælið Guðborg mín. Þvílíkur munur að vera laus við þetta :)
Helga Jónsdóttir, 16.12.2008 kl. 21:25
Til hamingju með það Gunna mín gangi þér bara rosa vel með þetta
Já Helga það er sko mikill munur og miklu meiri tími sem að maður hefur núna, gengur ekki allt vel hjá þér og þínum
Guðborg Eyjólfsdóttir, 17.12.2008 kl. 00:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.