Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
Hvenar byrjar byltingin ???
29.5.2009 | 00:53
Það eru nú farnar að renna á mig tvær grímur með að hafa kosið Samfylkinguna ég hélt ég væri að gera eitthvað svakalega sniðugt með því. Þetta eru nú meiri asnarnir þessir menn. Ég hvet til byltingar´. Allt í lagi að hækka álög á áfengi og tóbak en allt hitt finnst mér út í hött. Fólk er að lækka í launum í hrönnum, missa vinna, reyna að skrimta á atvinnuleysisbótum margir hverjir og þetta er það sem ríkisstjórnin gerir. Megi hún fara fjandans til
Áfengi og eldsneyti hækka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þjóðin er ekki í afneitun
22.5.2009 | 13:27
Það er ríkisstjórnin sem er í afneitun. Hvað á að gera segjið okkur það !!! Maður er eiginlega bara búin að fá slétt nóg af þessu öllu saman hérna
Það fer allt að verða vitlaust hérna ef halda á að rífast um sykurskatt og bindi á alþingi farið að gera eitthvað í málunum og hættið að rífast
Framsóknarmenn í afneitun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Maður fyllist stolti
12.5.2009 | 21:48
Þetta er í fyrsta sinn í marga mánuði sem ég fyllist stolti á því að vera Íslendingur, þið stóðuð ykkur eins og hetjur, til hamingju
Ísland komið áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað þýðir það ég bara spyr
8.5.2009 | 13:42
Þíðir þetta þá það að á hverja 4 manna fjölskyldu í landinu eru nokkrir kvótakóngar búnir að selja aflann fyrir 6 miljónir og hvernig væri þá að þessir svokölluðu kvótakóngar myndu skila sölugróðanum aftur og borga upp þessi lán sem hvíla á kvótanum OKKAR
Mun setja bankana aftur í þrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fyrir mistök
7.5.2009 | 17:52
Núna í janúar þá fóru forledrar mínir vestur í dali á bílnum mínum, komu svo við í Borgarnesi á leiðinni heim og settu olíu á bílinn minn, nokkrum dögum seinna var haft samband frá N1 í Borgarnesi og þau voru beðin um að koma með bílinn eitthvað í Reykjavík til að dæla af honum og setja nýja olíu á bílinn, þá hafði einhver snillingurinn á olíubíl sett vitlausa olíu á tankinn, ekki mjög spennandi að lenda í svona.
Einn með litaða olíu á bílnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Til hamingju
7.5.2009 | 09:04
Líst vel á norska seðlabankastjórann, keep on good work :))
Stýrivextir lækka í 13% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég hefði nú bara sleppt því að fara þarna
6.5.2009 | 20:29
Eins og það er nú sorglegt að hann skuli vera þarna þá er þetta náttúrlega eitthvað sem hann valdi að gera að reyna að smygla eiturlyfjum þannig að menn eiga að hugsa sig tvisvar um áður en þeir fara í svona sendiferðir
Ég á eftir að deyja hérna" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Svaraðu tilboðsbeiðni
4.5.2009 | 18:03
Ég hafði nú samband við Jón Olsen fyrir ca 2-3 vikum síðan og bað hann að gera tilboð í innkeyrslu fyrir forledra mína, hann hafði nú ekki einu sinni fyrir því að mæta og skoða verkið, þannig að annar aðili var fenginn í það og er nánast búinn með það, mér finnst ekki skrítið að það séu ekki til verkefni fyrir þetta fyrirtækii ef hann ansar ekki tilboðsbeiðni.
Öllum sagt upp hjá Nesprýði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |