Ég er alveg hissa
27.5.2010 | 23:46
Mér fannst þetta lag mjög gott og ef við hefðum haft tækifæri til að kjósa hérna á Íslandi þá hefði ég kosið Svíþjóð, er mjög leið fyrir þeirra hönd, annars finnst mér danska lagið mjög gott, og eins norska, svo kemur í ljós á laugardagskvöldið hvernig þetta fer allt saman :) En það er samt alveg merkilegt hvað við hérna á Íslandi höldum alltaf að við séum búin að sigra keppnina, það er alltaf verið að ræða fyrir hverja einustu Eurovision keppni hvar eigi að halda keppnina ef við vinnum, þetta er bara fyndið :)
Svíum brugðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Alveg drepfyndið. Eins og þetta íslenska lag er lélegt.
Hamarinn, 28.5.2010 kl. 00:09
Mér finnst einmitt þetta sænska hundleiðinlegt og það danska líka svo ég er ekkert að kvarta yfir þessu. Hvað er svona heillandi við þessa jarmandi rödd eiginlega? En já, mjög fyndið með okkur, þó mér finnist lagið ágætt og mjög vel flutt.
Skúli (IP-tala skráð) 28.5.2010 kl. 01:01
Þýskaland hlýtur að gjörsigra þetta, þegar maður er búin að hlusta á það þýska
þá skilur maður ekkert í því hvað hin löndin eru að bjóða upp á eða yfir höfuð að gera þarna.
HG (IP-tala skráð) 28.5.2010 kl. 01:27
Hvar er hinn sanni íþrótta andi, við sigruðum þrátt fyrir að hafa ekki lent á verðlaunapalli. Eins gott að Ísland þurfi ekki að halda keppnina að ári!
Fínasta keppni og skemmtun! Ísland er og verður alltaf laaangflottast!
www.zordis.com, 31.5.2010 kl. 15:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.