Hvernig er hægt að "líka" við þetta ??
24.11.2010 | 07:34
Þegar þessi færsla er skrifuð eru tveim sem að líkar við þessa frétt, þetta er alveg hræðilegt 29 fjöldkyldur eru búnar að missa einhvern þarna í þessum námum, ég skora á mbl.is að hafa ekki þennan "Líkar" hnapp við svona hræðilegar fréttir
Námamennirnir taldir af | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Það er misskilnigur hjá þér að einhverjum líki þetta. Þessi linkur er til að tengja fréttina við facebook, ekki til að segja sína skoðun, nema þá á facebook.
Þetta er eitt af þeim atriðum sem auðvelt væri fyrir MBL að breyta, það er að í stað "líkar" aftan við tengilinn stæði "tengja". Það er jú tilgangur tengilsins.
Gunnar Heiðarsson, 24.11.2010 kl. 09:21
Það er annar hnappur sem heitir Deila sem er til þess að setja þetta á facebook :) þannig að Líkar hnappurinn má alveg missa sig við svona fréttir :) Eflaust er það engum sem líkar þetta á nú bágt með að trúa því svosem
Guðborg Eyjólfsdóttir, 24.11.2010 kl. 09:29
Já ég hef ekki tekið eftir þessu, en þetta mál er svo hræðilega sorglegt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.11.2010 kl. 11:26
Þetta er sennilega hættulegasta starf í heimi. En á tímum jafnréttis, afhverju eru það bara karlmenn sem vinna þessi hættulegu störf? Eru femínistar ekki alltaf vælandi um jafna kynjaskiptingu í starfsstéttum,,, eða á það bara við þægilegu blýantsnagaradjobbin ?
Óskar, 24.11.2010 kl. 12:04
Óskar hvar stendur það að konur vinni ekki í kolanámum ??
Guðborg Eyjólfsdóttir, 24.11.2010 kl. 12:20
Það held ég að sé afskaplega sjaldgæft. Ekki var ein einasta kona í hópnum sem lokaðis í námunni í Chile og heldur ekki á Nýja Sjálandi. Ætli karlmenn séu ekki um 99,9% námustaffs í heiminum. - þarf ekki að laga þessi hlutföll í takt við jafnréttið ?,,, Reyndar er þetta svipað hér í hættulegustu störfunum, hvað eru margar konur byggingaverkakonur eða hásetar á sjó ?..veit þær eru til en þær eru teljandi á fingrum annarar.
Óskar, 24.11.2010 kl. 12:32
Hvað kemur þetta þessu máli við Óskar, hefði verið betra ef að helmingurinn hefði verið konur í þessum hópum sem lokuðust inni ?? Ég bara spyr
Guðborg Eyjólfsdóttir, 24.11.2010 kl. 13:03
Vildi bara benda á þetta því það er æpandi í fréttum af vinnuslysum bæði hér á landi og annarsstaðar að það eru nánast allt karlmenn sem slasast eða farast- en það er tabú að tala um þetta á jafnréttistímum, skrítið :)
Óskar, 24.11.2010 kl. 13:38
Sammála fyrsta ræðumanni þetta er fáránlegt að það skuli vera like hnappur á svona fréttir. Þetta er hræðilega sorglegt.
Og þú þarna Óskar ertu að reyna að pikka fight eða??? Þetta kemur málinu ekkert við ...frekar hallærislegt komment.
Berglind (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 14:22
Já þetta er bara hræðilegt og kemur kynja rétti ekkert við
Guðborg Eyjólfsdóttir, 24.11.2010 kl. 15:33
Óskar, þú ættir að skammast þín. Ég bjó á Nýja Sjálandi í 14 ár og veit að svona umræða yrði ekki liðinn þar og ef einhver dirfðist að nefna þetta á þessum sorgar tíma væri eins gott að hann mundi ekki sýna andlit sitt út á meðal fólk í langan tíma
Hrafnkell Hannesson (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 18:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.