Frumraun mín í brauðvélabakstri :(
26.2.2008 | 10:38
Eruð þið nokkuð snillingar í að baka brauð í vél. Ég keypti mér brauðvél um daginn og ætla að fara að vera voða dugleg að baka mitt eigið brauð. Þetta er frumraunin :( var í vélinni í 3 og hálfan tíma og kom svo eins og eldgömul slitin dýna úr vélinni. Vitið þið hver ástæðan getur verið? Eigið þið einhverjar góðar uppskriftir af brauðum í vél. Og kanski smá leiðbeiningar :). Ef svo er viljið þið elskulega fólk sem les þetta gefa mér þær. Annað hvort hérna á blogginu eða á netfangið gudborge@simnet.is
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Maður á víst ekki að hlæja að óförum annara en fyrirgefðu,eg sprakk úr hlátri þegar eg las færsluna þína.
En ég kann nú ekkert á svona brauðvél og get því ekki rálagt þér neitt í þessum efnum.En vonandi gengur betur næst.Kveðja
Erna, 26.2.2008 kl. 11:02
Haha ég skil vel að þið hafið hlegið, þetta er nú eiginlega bara fyndið, nei ekki mjög girnilegt Einar haha
Guðborg Eyjólfsdóttir, 26.2.2008 kl. 12:03
HAHAHA hélt fyrst að þetta væri ílla farin tönn
því miður á ég enga uppskrift fyrir brauðvél. Gangi þér vel 
Ásgerður , 26.2.2008 kl. 12:13
Svona leit þetta út hjá mér líka í fyrsta skipti sem ég gerði brauð í vélinni minni :)
Líklegustu ástæður eru að þú hafir notað of heitt vatn, gerið hafi verið gamalt eða að vélin hafi verið opnuð á meðan á hefingu stendur, en þá fellur deigið.
Fylgdu ekki leiðbeiningar og uppskriftir með vélinni þinni?
Bríet , 26.2.2008 kl. 12:30
Elsku frænka ! Þú getur þetta, æfingin hún skapar meistarann.
Ekki gefast upp :) :)
Sigrún Þórey (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 12:32
Bríet, takk fyrir þetta, vélin var ekki opnuð þannig að það er annað hvort gerið eða vatnið, ég notaði þurrger, á ekki örugglega að gera það?? Ef ekki hvernig ger er þá best að nota. Ég er svo græn í þessu. haha
En kæra Sigrún Þórey gaman að sjá komment frá þér, ert þú ekki með bloggsíðu sjálf ? Bið að heilsa á Ísafjörð :)
Guðborg Eyjólfsdóttir, 26.2.2008 kl. 13:01
Hahah illa farin tönn, já gæti alveg litið út fyrir það
Guðborg Eyjólfsdóttir, 26.2.2008 kl. 13:02
Bara að hugsa að æfinginn skapar meistarann gangi þér vel í brauðbakstri...
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 26.2.2008 kl. 13:40
Takk fyrir það Heiður :)
Guðborg Eyjólfsdóttir, 26.2.2008 kl. 13:43
NEI ég er ekki með bloggsíðu. Er stundum að flakka á netinu og rakst á
síðuna þína kæra frænka. Það biðja allir að heilsa þér og þínum. :)
( Held áfram að fylgjast með )
Sigrún Þórey (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 13:53
Á ekki svona vél hvað þá að ég kunni að baka í henni. Vonandi færðu einhver vitræn svör Guðborg mín
Segi eins og Heiður æfingin skapar meistarann og svo er fall fararheill, svo þér á eftir að ganga vel með baksturinn, endilega leyfðu okkur að fylgjast með.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2008 kl. 14:39
Þetta er hrein snilld, þetta brauð hjá þér. Rakst á síðuna þína, velkomin í bullið.
Ella Kata (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 19:43
Takk fyrir það Ella mín
Guðborg Eyjólfsdóttir, 28.2.2008 kl. 06:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.