Próf í gær og annað á laugardaginn
4.11.2008 | 12:34
Jæja það gekk bara nokkuð vel í prófinu í gær held ég en það kemur reyndar í ljós eftir ca 2 vikur hvað ég fékk í því það gildir 50% prófið sem ég var í , í gær svo prófið sem ég fer í á laugardaginn gildir 50% á móti þannig að nú er bara að krossa fingur og gera sitt besta
22. nóv ætlum við hjónin á Hótel Örk með vinnufélögum mínum ég hlakka mikið til að fara í burtu og þá ætla ég gjörsamlega að loka á allar skuldahugsanir og vandamál og skemmta mér fram á rauða nótt
Stjörnuspáin mín fyrir daginn í dag :
Naut: Þú ættir kannski að segja frá því sem þú vilt helst halda fyrir sjálfan þig. Gerðu það fyrir alla muni því vináttuvottur, þótt lítill sé, gleður mannsins hjarta.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Til lukku með prófið Guðborg mín. Þér mun ganga vel, og góða skemmtun. Knús
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.11.2008 kl. 20:30
Djammaðu eins og þú getur.... skuldirnar fara ekkert... því miður. En gott að reyna að gleyma þeim stundarkorn
Bestu kveðjur til ykkar
Kolbrún Jónsdóttir, 4.11.2008 kl. 21:54
Gangi þér vel í prófinu og njóttu þín á Örkinni!!! Góð gleði er fyrir öllu.
www.zordis.com, 4.11.2008 kl. 23:36
gott að þú haldir að vel hafi gengið í prófinu
Margrét M, 5.11.2008 kl. 09:18
Takk fyrir þetta kæru vinkonur, svo kemur þetta bara í ljós eftir ca 2 vikur :)
Guðborg Eyjólfsdóttir, 5.11.2008 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.