Eins gott að passa bíllyklana
22.7.2009 | 13:13
Allt er nú til, blessað barnið að keyra sofandi frá Húsafelli til Keflavíkur, yngri dóttir mín á það til að láta illa í svefni og tala og jafnvel labba þannig að það er eins gott að fara að fela bíllyklana :)
Ók landshluta á milli í svefni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Áfengi tekið af mér í Kaupmannahöfn
22.7.2009 | 11:19
Fyrir 2 árum fór ég með flugi héðan á Íslandi keypti Baleys og Vodka pela í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli, millilenti í Kaupmannahöfn á leið minni til Lettlands og þá var nú vínið mitt tekið af mér, þannig að það eru nú ekki bara íslenskur flugvöllur sem gera þetta þeir gera þetta sjálfir í Danmörku. Ég varð öskureið þetta var innsiglað í Fríhafnarpoka héðan
Tollurinn tekinn í Keflavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég skal vera tilraunadýr
14.7.2009 | 07:34
Vá ef maður missti nú 25% af líkamsþyngd á 1 viku þá er ég til í að vera tilraunadýr fyrir þetta verkefni, þarf að missa það og gott betur, þannig að endilega notið mig :)))
Léttust um fjórðung á viku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Atvinna í Noregi
9.6.2009 | 12:49
Maðurinn minn er búinn að vera síðan í febrúar að vinna í Noregi, ekki get ég sagt að þetta sé alveg æðinslegt að hafa hann ekki heima til að taka þátt í uppeldi barna minna. Hann vinnur þar og borgar sína skatta og skyldur þar, á meðan er ég hérna heima ekki á neinum rosalaunum og borga þar af leiðandi ekki mikið í ríkiskassann, en samt nota ég og og börnin mín alla þjónustu hérna. Þetta getur ekki haft góðar afleiðingar fyrir landið þegar aðal fyrirvinnan fer úr landi til að vinna og restin af fjölskyldunni eru afætur á land og þjóð á meðan. Ég óska þess að eitthvað fari að gerast hérna í þessu landi svo að okkur verði gert kleift að búa saman sem fjölskylda hérna á Íslandi, ekki í Noregi
Íslendingar streyma til Noregs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
285 miljarðar iss hvað er það
3.6.2009 | 18:10
Manni finnst 285 miljarðar vegna heimilana vera smá aurar. Afskrifa þetta bara þeir þarna útrásar asnarnir geta tekið þetta upp úr vinstri vasanum. Allar þessar tölur eru orðnar mjög óraunsæjar fyrir fólki, það er allt talið í miljörðum. Þeim munar ekkert um þetta, sko útrásarvíkingunum
Niðurfelling þýðir kollsteypu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Greyjið kerlingarálftin
1.6.2009 | 10:48
Manni er nú farið að þykja pínu vænt um þessa kerlingarálft sem sigraði heiminn á 1 degi, ekki skrýtið að hún þoli ekki álagið.
Óska henni góðs bata svo hún geti farið að syngja aftur I dreamed a dream
Susan Boyle á sjúkrahús | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvenar byrjar byltingin ???
29.5.2009 | 00:53
Það eru nú farnar að renna á mig tvær grímur með að hafa kosið Samfylkinguna ég hélt ég væri að gera eitthvað svakalega sniðugt með því. Þetta eru nú meiri asnarnir þessir menn. Ég hvet til byltingar´. Allt í lagi að hækka álög á áfengi og tóbak en allt hitt finnst mér út í hött. Fólk er að lækka í launum í hrönnum, missa vinna, reyna að skrimta á atvinnuleysisbótum margir hverjir og þetta er það sem ríkisstjórnin gerir. Megi hún fara fjandans til
Áfengi og eldsneyti hækka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þjóðin er ekki í afneitun
22.5.2009 | 13:27
Það er ríkisstjórnin sem er í afneitun. Hvað á að gera segjið okkur það !!! Maður er eiginlega bara búin að fá slétt nóg af þessu öllu saman hérna
Það fer allt að verða vitlaust hérna ef halda á að rífast um sykurskatt og bindi á alþingi farið að gera eitthvað í málunum og hættið að rífast
Framsóknarmenn í afneitun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Maður fyllist stolti
12.5.2009 | 21:48
Þetta er í fyrsta sinn í marga mánuði sem ég fyllist stolti á því að vera Íslendingur, þið stóðuð ykkur eins og hetjur, til hamingju
Ísland komið áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað þýðir það ég bara spyr
8.5.2009 | 13:42
Þíðir þetta þá það að á hverja 4 manna fjölskyldu í landinu eru nokkrir kvótakóngar búnir að selja aflann fyrir 6 miljónir og hvernig væri þá að þessir svokölluðu kvótakóngar myndu skila sölugróðanum aftur og borga upp þessi lán sem hvíla á kvótanum OKKAR
Mun setja bankana aftur í þrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |