Ætti nú ekki að vera mjög flókið
17.6.2010 | 00:49
Setja gengið á þá stöðu sem lánin voru þegar þau voru veitt og lækka höfðustólinn eftir það sem er búið að greiða of mikið í þessum lánum, það er ekki svo erfitt að reikna eitthvað þegar á að hækka hlutina þannig að þetta getur nú varla verið svo flókið. Ég vil lækkun fljótt og líka á húsnæðislánin takk fyrir
Ekki ljóst hvernig eigi að reikna á lánin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Það er sáraeinfalt hvernig á að endurreikna gengistryggðu lánin, þau eru óvertðryggð með sömu vexti og standa á skuldabréfinu eða samningnum. Hæstiréttur tók nefninlega afstöðu til þess líka, í þriðja tímamótadómnum sem féll á miðvikudaginn. Þessi niðurstaða drukknaði hinsvegar í öllu fjölmiðlafárinu útaf bílalánadómunum tveimur, og þannig gafst hinum skipulögðu glæpasamtökum því miður færi á að setja spunavélarnar í gang. Þannig að þegar einhver sjálfskipaður spekingurinn heldur því fram að vafi leiki á hvernig skuli endurreikna gengistryggð lán, þá er það einfaldlega rangt.
317/2010 NBI hf. (Aðalsteinn E. Jónasson hrl.) gegn Þráni ehf. (Ragnar Aðalsteinsson hrl.) (Kveðinn upp: 16.6.2010 )
Guðmundur Ásgeirsson, 18.6.2010 kl. 09:32
Með ólíkindum það sem er að gerast! Vonandi að réttlætið sigri og að allir fá uppreisn í sínum málum.
www.zordis.com, 29.6.2010 kl. 13:55
Við þurfufm nýtt fólk í brúna.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.7.2010 kl. 11:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.