Meiri kvóti flott - EN......

Hver fær hann upp í hendurnar þennan kvóta, eru einhverjir ákveðnir einstaklingar sem eignast hann og selja hann svo til að hagnast á honum, það á að stoppa þetta kvótarugl.
mbl.is Þorskkvóti aukinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

og ef einhver selur hann? og hvað? tapar þú beint á því? er tekinn peningur af þínum bankareikningi til að kaupa kvótann?

nei. einhver annar skuldsetur sig til að kaupa kvóta af öðrum. sá sem selur borgar síðan upp sín lán. 

annars tel að það verði engin kaup og engin sala. það er ekki til lánsfé og þar með er allt þetta röfl merkingarlaust um kaup og sölu á kvóta. menn munu bara veiða hann sjálfir og selja fiskinn og afla gjaldeyris. 

Fannar frá Rifi, 16.1.2009 kl. 12:14

2 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Tapa ég beint á því, nei það er ekki tekið úr buddunni minn beint þegar einhver er að kaupa eða selja kvóta en á heildina litið fer þetta úr buddunni okkar allra, það er ekkert eðliegt að nokkrir menn í þessu þjóðfélagi eigi fiskinn í sjónum og geti selt hann ofurprís og lifað góðu lífi sem eftir er og ekki bara hann heldur öll familýan. Þú kanski tekur þessu svona því þú ert þá kanski sjálfur í kvótabraski ???

Guðborg Eyjólfsdóttir, 16.1.2009 kl. 13:49

3 Smámynd: sur

Mikid er ég sammála thér Gudborg. Ég hélt ad fiskurinn ætti ad vera thjódareign en ekki einhverja einstakra fjölsk. hér í landinu.

Eitthvad hefur thú hitt á veikan púnt hjá Fannari.

Kær kvedja

sur, 16.1.2009 kl. 14:07

4 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Takk fyrir það Sur

Guðborg Eyjólfsdóttir, 16.1.2009 kl. 16:43

5 Smámynd: www.zordis.com

Ef það væru bara hafmeyjur og peyjar í sjónum þá væri enginn kvóti! Það kynnu væntanlega allir að synda og ástin væri ríkjandi í þessum heimi ...

Já, ég er langt frá raunveruleikanum, þarf að koma mér á jörð til að stunda fjarnámið. Ertu búin að skrá þig á þessa önn??

www.zordis.com, 16.1.2009 kl. 20:51

6 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

ok.. byrjum á því að svara upphaflegu bloggi..

"Hver fær hann upp í hendurnar þennan kvóta"

hann skipist niður á milli þeirra sem að eiga kvóta í dag, og skiptist alveg hlutfalslega niður á milli þeirra...

en já.. síðan að þessari andskotans vitleysu með þetta sem að "kellingar í vesturbænum vilja"

þú verður bara að afsaka... ég tek svona til orða.....

en já.. ok.. núna eftir þessa aukningu er þorskkvótinn orðinn rétt umþað bil 160.000 tonn

við íslendingar erum 320.000

sem að gerir umþað bil 500 kíló á hvern einn og einasta íslending.

ætlar þú að segja mér að "þínum" 500 kílóum yrði betur varið hjá þér en þeim sem að hefur þau núna ?

og ef að þú svarar þessu já 

(sem að nota bene koma án efa til með að fylgja ræður um sameign þjóðarinnar, kvótabraskara og allan andskotann...)

ætlar þú þá að taka á þig skuldir sem að fylgja hugsanlega þessum 500 kílóum þínum (já og nota bene 500 kílóum annara í fjölskyldunni þinni) 

og já...

það sem að ég vill síðan vita er..

hvað mundir þú gera við þín 500 kíló?

mundir þú kaupa þér bát á nokkrar milljónir til þess að veiða afla uppá ca 1.200.000 á ári..

mundir þú ekki bara líkleagst selja hann hæst bjóðenda og þar að leiðandi verða kvótabraskari... 

Árni Sigurður Pétursson, 17.1.2009 kl. 07:14

7 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

afsakið...

þar sem að stendur þarna

mundir þú kaupa þér bát á nokkrar milljónir til þess að veiða afla uppá ca 1.200.000 á ári..

átti að vera

mundir þú kaupa þér bát á nokkrar milljónir til þess að veiða afla uppá ca 120.000  á ári..

Árni Sigurður Pétursson, 17.1.2009 kl. 08:02

8 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Þakka þér fyrir þetta Árni gott að fá lif hérna í þessa umræðu, en heldur þú að það sé það sem ég er að tala um að ég eigi að fá þennan kvóta fara svo og kaupa mér trillu á nokkur hundruð þúsund, því jú það er nú hægt að kaupa trillu fyrir nokkur hundruð þúsund kalla   Nei ég er að meina að nokkrir kvótakóngar í þessu þjófélagi sem eiga orðið fiskinn í sjónum því hann er veðsettur upp fyrir allt saman,þetta er ekki eðlilegt , bæjarfélögin ættu að fá kvótann sem síðan úthluta honum til notkunar ekki til eignar.

Maður hefði nú haldið að auðlindir Íslendinga væru Auðlindir Íslendinga ekki einhverra nokkura manna.

Kanski hitti ég á veikann punkt hjá þér , ég veit það ekki.

En eigðu góðan dag

Guðborg Eyjólfsdóttir, 17.1.2009 kl. 09:16

9 Smámynd: Guðrún Pálína Karlsdóttir

Já elsku kella mín hafðu það sem best.Gott hjá þér með kvótan haha.

Kvóta Knús

Guðrún Pálína Karlsdóttir, 18.1.2009 kl. 01:19

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það hefði verið nær að auka byggðakvóta og fá þennan aukaskammt í hendur smábátaútgerðarmanna, línu og krókaveiðar.  Það myndi hámarka verðmæti hans.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.1.2009 kl. 10:59

11 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

En hvernig er það er ekki hvalurinn búin með kvótan  

Knúsý knús Óla og nagdýrið hún Vala Óludóttir hehe 

Ólöf Karlsdóttir, 22.1.2009 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband