Löggst í flensu eina ferð.........

Er ekki komið nóg af þessu flensu veseni, ég er búin að vera eins og drusla í allan vetur alltaf með einhvern flensu skít í mér, núna er ég komin með hita, beinverki og allan pakkann. Parkódín Forte og eitthvað annað lyf sem á að hjálpa mér að ná upp úr lungunm mínum er bestu vinir minn núna. Gummi kom áðan sótti stelpurnar og skutlaði þeim í skólann og leikskólann og núna ætla ég að skríða upp í rúm og kúra með bestu vinum mínum í dag ( pillunum ) Þetta er nú samt ekki að henta núna svona í miðri vertíð en það verður bara að bíða aðeins :( Megið þið eiga góðan dag sem lesið þetta og vonandi sendið þér mér góða heilsu í huganum. Takk fyrir mig

Góður kall

Hver segir að það sé slæmt að reykja :) þegar maður les svona fréttir þá hættir maður að hafa móral yfir því að reykja. frábært 101 árs að taka þátt í maraþonhlaupi, það er nú líka ekki að sjá á manninum að hann sé svona gamall

Buster Martin er hvergi af baki dottinn og hyggst taka þátt í Lundúnarmaraþoninu.<br><em>Reuters</em>


mbl.is Stefnir á maraþonhlaup 101s árs að aldri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattavertíðin byrjuð

Ég verð nú örugglega ekki mikið hérna á næstunni að blogga þar sem skattavertíðin mín er byrjuð, ég vona samt að ég glati ekki ykkur yndislegu bloggvinir sem ég er búin að eignast hérna, ætla að reyna að kíkja samt kanski stundum á kvöldin Undecided

Stúlka er fædd

Mágkona mín eignaðist stúlku í gærkvöldi rétt náði að gefa manninum mínum hana í afmælisgjöf. Til hamingju Anna og Bjarni með litlu dúlluna.

Flugstjórinn á heiður skilið

Þetta er ótrúlegt hvað flugstjóranum tókst að bjarga vélinni og mér finnst hann eigi heiður skilið fyrir þetta atvik. En ég segi nú bara enn og aftur, ekki hefði ég viljað vera í þessari vél.
mbl.is Lá við flugslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég orðin gömul eða ..........

Byrjuðum daginn í gær á að fara í barnaafmæli um hádegið með stelpurnar með okkur að sjálfsögðu það leið ekki á löngu að hún Kristrún mín væri orðin veik, hún hafði enga lyst á afmælisveigunum og lá bara og kúrði hjá mömmu sinni, svo drifum við okkur upp á hótel og tókum stelpurnar með og svo kom mútta mín og litli bróðir og náði í þær.

Við "gömlu" hjónin lögðum okkur í smástund til þess að safna kröftum fyrir kvöldið, svo var byrjað að fá sér neðan í því og var bara svaka gaman. Við fórum með Kollu og Hlyn vinafólki okkar og svo öðrum hjónum sem að eru vinfólk þeirra, en reyndar okkar líka núna, yndislegt fólk allt saman og æðinslega gaman að skemmta sér með þeim

Við fórum á Humarhúsið og borðuðum það sem ég var búin að setja í fyrri færsluna og þetta bragðaðist alveg rosalega vel, reyndar fannst mér að það mætti vera aðeins meira meðlæti með nautalundinni heldur en var, en engu að síður mjög gott, við sátum þarna í næstum 3 klukkutíma og borðuðum og drukkum, og stofnuðum matarklúbb í leiðinni, ætlum að hittast nokkrum sinnum á ári og elda fyrir hvort annað, hlakka til.

Fórum svo aðeins á Apótekið, þá fann ég það að ég er farin að eldast, ég var ekki að nenna að vera þarna inni í öllum þessum hávaða og fólksfjölda, drukkum 1 drykk þar og svo drifum ég og maðurinn minn okkur upp á hótel, maður verður nú að njóta þess að fá að sofa saman bara 2 það er nú ekki oft sem það gerist með tvær skvísur sem skríða upp í allar nætur :)

Við vorum bara komin á lappir 8:30 í morgun og drifum okkur heim til að sækja litlu veiku prinsessuna okkar, ég held að það hafi kanski líka aðeins dregið úr okkur að vita af henni veikri.


Humarhúsið.......

Þetta ætla ég að fá mér á morgum þetta er matseðillinn á Humarhúsinu, þið segið kanski skrýtið að fara á Humarhúsið og fá sér kjöt, en ég fer bara á Humarhúsið af því að þeir sem ég er að fara með eru humarætur :)

Forréttur

Rjómalöguð humarsúpa m/ hvítlauksristuðum humar
Cream of lobster soup
 

Aðalréttur

Nautalund m/grilluðum humar og sveppakartöfluköku
Tenderloin of beef or horse w/grilled icelandic lobster tails, mushroom and potato cake 


Svo ætla ég að skola þessu niður með rauðvíni hússins og kók með líka

jamm jamm líst ykkur ekki vel á þetta.


Skyldi ég komast út að skemmta mér

Ég er að fara í Reykjavík á morgum og fara á hótel, út að borða og svo eitthvað ut á lífið, þetta er eitthvað sem að maður gerir mesta lagi einu sinni á ári, og ég er að kafna í hósta og með beinverki, ég ætla að fara til læknis á eftir og vita hvort ekki sé hægt að fá eitthvað fljótvirkandi til þess að kíla þetta niður. Og ef ég verð orðin fárveik á morgum þá fer ég samt allavega á hótelið, því ég er búin að borga fyrir það.

Ég á eina kunningja konu sem á afmæli í dag hún er sem sagt 9 ára í dag blessunin og til hamingju með það Dísa mín.

Tek það fram að það er margfaldað mér 4, sem sagt 36 ára en hefur bara átt 9 afmælisdaga þar sem hún fædd 29 febrúar

 


Enn eitt farbannið

Tók þetta af vef Víkurfrétta, hvað er að þessu dómskerfi hérna afhverju eru allir afbrotamenn settir í farbann, svo komast þeir úr landi með einhverjum hætti, eða farbannið fellt niður og þeir eru farnir. skil þetta ekki.

Barnaperrinn reyndi að flýja land

Maðurinn sem var handtekinn á sunnudaginn í Sundmiðstöð Keflavíkur fyrir að leita á ungar stúlkur, var úrskurðaður í 6 vikna farbann nú síðdegis. Síðustu tvo daga hafa borist sex kærur vegna mannsins, sem hefur ekki íslensku sem móðurmál,  og er líklegt að fleiri fylgi í kjölfarið. Hann reyndi að komast úr landi eldsnemma í morgun en var stöðvaður í tæka tíð samkvæmt frétt á visir.is.
Farið var fram á það við Héraðsdóm Reykjaness að maðurinn yrði settur í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Dómari féllst ekki á það og úrskurðaði manninn í sex vikna farbann.



Vinsældalistinn

Ég sá það nú bara á síðunni hennar Jennýar í dag að það væri til vinsældarlisti í blogginu, þannig að ég fór að skoða og fletta og fann það út að ég er í sæti 123 flott tala, takk fyrir að taka mér í bloggaralandi :)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband